![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a7/FoodWeb.svg/langis-640px-FoodWeb.svg.png&w=640&q=50)
Fæðuvefur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fæðuvefur sýnir fæðutengsl lífvera og hvernig lífverur í líffélagi lifa á öðrum lífverum í gegnum af margar samtengdar fæðukeðjur. Rétt eins og fæðukeðja lýsir fæðuvefur fæðuferlinu í líffélaginu nema bara í stærra samhengi. Þar má segja að fæðukeðjunum hafi nokkurn vegin verið spunnið saman í einn stóran vef. Einn fæðuvefur getur því í sumum tilfellum lýst fæðuferli heils líffélags. Þannig eru frumframleiðendurnir neðstir og neytendunum raðað í viðeigandi röð eftir því hvaða dýr borða hvað þangað til fæðuvefurinn endar á stærstu og grimmustu dýrunum.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/89/Soil_food_webUSDA.jpg/640px-Soil_food_webUSDA.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a7/FoodWeb.svg/640px-FoodWeb.svg.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0e/Chesapeake_Waterbird_Food_Web.jpg/320px-Chesapeake_Waterbird_Food_Web.jpg)