Esperanto
alþjóðlegt tilbúið tungumál / From Wikipedia, the free encyclopedia
Esperanto er útbreiddasta tilbúna tungumálið. Nafnið er dregið af rithöfundarheiti Ludovics Lazarusar Zamenhofs, „D-ro Esperanto“. Hann gaf út sitt fyrsta verk um málið undir því nafni. Esperanto þýðir bókstaflega „Sá sem vonar“. Aðaleinkenni tungumálsins er að það eru engar undantekningar á málfræðinni og hefur það ýtt undir útbreiðslu þess um allan heim. Þar að auki þarf lítinn orðaforða til að geta bjargað sér í málinu, þar sem einstök orð eru mynduð af stofni orða með aðskeytum (for- og viðskeytum).
Staðreyndir strax Esperanto, Opinber staða ...
Esperanto Esperanto | ||
---|---|---|
Málsvæði | Um allan heim | |
Heimshluti | Plánetan jörð | |
Fjöldi málhafa | 100.000-2.000.000 | |
Sæti | Ekki á meðal 100 efstu | |
Ætt | Tilbúið tungumál | |
Opinber staða | ||
Stýrt af | Akademio de Esperanto | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | eo | |
ISO 639-2 | epo | |
SIL | EPO | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Loka