Eskimó-aleútísk tungumál
From Wikipedia, the free encyclopedia
Eskimó-aleútísk mál eru tungumálaætt sem töluð er af íbúum á Grænlandi, í heimskautahéruðum Kanada, Alaska og austurhluta Síberíu. Tveir tungumálahópar tilheyra þessari málafjölskyldu, annars vegar svonefnd eskimóatungumál (sem eru kölluð inuítamál á norðurströnd Alaska, í Kanada og á Grænlandi, júpik á vesturströnd Alaska, en júit í Síberíu), og hins vegar aleútíska.
Staðreyndir strax Frummál, Undirflokkar ...
Eskimó-aleútísk tungumál | ||
---|---|---|
Frummál | Frumeskimó-aleútíska Frumeskimó | |
Undirflokkar | aleútíska inúítamál | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-2 | esx | |
Eskimó-aleútísk mál í Norður-Ameríku |
Loka
Þó aleútíska og inúítamál séu náskyld er enginn efi á að þar er um að ræða aðskilin tungumál sem þróuðust sitt í hvora áttina fyrir um 3.000 árum. Hins vegar eru tungumálafræðingar (og talendur sjálfir) ekki á einu máli um hvort tala eigi um mállýskur eða sjálfstæð mál innan inuítatungu. Þrátt fyrir að mikill munur sé á milli kjarnamálsvæða eru hvergi skörp skil milli svæða.