![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/37/Athen_Erechtheum_BW_2017-10-09_13-47-38.jpg/640px-Athen_Erechtheum_BW_2017-10-09_13-47-38.jpg&w=640&q=50)
Erekþeion
From Wikipedia, the free encyclopedia
Erekþeion (gríska Έρέχθειον, Erekþeion) er hof á Akrópólishæð í Aþenu.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/37/Athen_Erechtheum_BW_2017-10-09_13-47-38.jpg/640px-Athen_Erechtheum_BW_2017-10-09_13-47-38.jpg)
Hofið var byggð til að koma í staðinn fyrir Eldra hof Aþenu og var líka tileinkað og skírt í höfuðið á Erekþeifi. Sá var einn af þjóðsögulegu konungum Aþenu, seinna gerður að guði og stundum líkt við sjálfan Póseidon. Það var byrjað að byggja það í Níkiasfriðinum (421 – 415 f.Kr.) en var svo truflað vegna endurupptöku stríðsins og var ekki lokið við það fyrr en um 406 f.Kr. Á þeim tíma tók það við hlutverki Eldra hofi Aþenu og var tileinkað Aþenu Polias. Hofið er sagt vera byggt á staðsetningunni þar sem Póseidon rak stafinn sinn í stein til að fá sjó flæða fram og þar sem Aþena lét olívutré vaxa.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8f/Erechtheum_porch.jpg/640px-Erechtheum_porch.jpg)
Það hefur forsal á austurhliðinni, risaverönd á norðurhliðinni og hina frægu-Karýatids verönd á suðurhliðinni, með súlum sem mynda konur. Aðalhofið var skipt í tvo hluta, tileinkað dýrkun tveggja aðalguða Attíku, Aþenu og Póseidon-Erekþeifi. Myndræma, hugsanlega að sýna fæðingu Erekþeifs, prýðir ytra borð byggingunnar.