![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/Elias_L%25C3%25B6nnrot_portrait-2.jpg/640px-Elias_L%25C3%25B6nnrot_portrait-2.jpg&w=640&q=50)
Elias Lönnrot
From Wikipedia, the free encyclopedia
Elias Lönnrot (9. apríl 1802 – 19. mars 1884) var finnskur læknir, textafræðingur og safnari gamalla finnskra sögukvæða. Hann er þekktastur fyrir að hafa safnað saman og skapað goðsagnakvæðið, Kalevala, (1835, aukið 1849), úr styttri kvæðum og danslögum[1] sem hann safnaði úr finnskri sagnahefð í nokkrum ferðum sínum um Finnland, Lappland, Rússnesku Karelíu, Kólaskaga og Eystrasaltslöndin.[2] Hann setti einnig saman fyrstu finnsk-sænsku orðabókina[3] og setti hana upp í stafrófsröð en ekki eftir orðsifjum eins og hafði verið venjan áður.[4][5] Að auki samdi hann fyrstu flóruna á finnsku máli: Flora Fennica – Suomen Kasvisto 1860 í stað latínu. Hún var svo endurútgefin og aukin með aðstoð Th. Saelan 1866 [6]
Staðreyndir strax Fæddur:, Látinn: ...
![]() | |
Fæddur: | 9. apríl 1802 Sammatti, Uusimaa, Svíþjóð (nú Finnlandi) |
---|---|
Látinn: | 19. mars 1884 Sammatti, Uusimaa, Stórfurstadæmið Finnland, Rússneska keisaraveldinu (nú Finnland) |
Starf/staða: | Læknir, textafræðingur, ljóðasafnari |
Þjóðerni: | Finnskur |
Loka