Eldur er heitt, glóandi gas sem myndast við bruna þegar oxun verður í útvermu efnahvarfi. Í eldi myndast jónir og hann er því leiðandi. Til þess að eldur geti myndast þarf þrennt: eldsneyti, súrefni og hita. Þegar slökkva skal eld er einn af þessu þremur þáttum fjarlægður úr umhverfinu. Eldar ljóma með sýnilegu ljósi og innrauðu ljósi og geta ljómað með útfjólubláu ljósi.

Thumb
Stór varðeldur

Sinueldur, er eldur sem langoftast er kveiktur af mönnum til að eyða sinu. Skógareldur er eldur sem geisar í skóglendi og kviknar oftast af eldingu eða af mannavöldum. Eldar valda gríðarlegu tjóni ár hvert, hvort sem um mannslíf, mannvirki eða gróður er að ræða.

Slökkvilið sérhæfir sig í að slökkva elda sem geta valdið tjóni.

Tengt efni

Tenglar

  • Úr hverju er eldurinn eiginlega gerður? Og af hverju eru logarnir rauðir?; af heimasíðu Lifandi vísinda Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine
  • „Af hverju er eldur heitur?“. Vísindavefurinn.
  • Frá eldbor til eldspýtu; grein í Tímanum 1952

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.