![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/ff/Ebola_virus_em.jpg/640px-Ebola_virus_em.jpg&w=640&q=50)
Ebóla
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ebóla (EBOV) eða Ebóluveira er einþátta RNA þráðveira sem veldur blæðandi veirusótthita í mönnum, einnig kallað Ebólu-blæðingarsótt. Veiran er skæð og ein sú banvænansta sem þekkist nú á dögum. Veiran er nefnd eftir Ebólafljótinu í Austur-Kongó og kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1976. Fjögur þekkt afbrigði eru til af veirunni og öll nefnd eftir þeim svæðum sem þau hafa fundist á.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/ff/Ebola_virus_em.jpg/640px-Ebola_virus_em.jpg)
Peter Piot, belgískur vísindamaður, var meðal þeirra sem greindu veiruna fyrst árið 1976. Veiran hefur skotið upp kollinum reglulega og hafa staðbundnir faraldrar átt sér stað í Afríku allt frá árinu 1994. Fyrsta tilfelli Ebóluverunar utan Afríku átti sér stað árið 2014, og var þar að um að ræða heilbrigðisstarfsmann í Madríd sem hafði smitast við aðhlynningu sjúklinga sem fluttir höfðu verið til Spánar frá Afríku.