![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/03/Display_of_Procesional_Crosses%252C_Church_of_Bet_Maryam%252C_Lalibela%252C_Ethiopia_%25283230772118%2529.jpg/640px-Display_of_Procesional_Crosses%252C_Church_of_Bet_Maryam%252C_Lalibela%252C_Ethiopia_%25283230772118%2529.jpg&w=640&q=50)
Eþíópíska rétttrúnaðarkirkjan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Eþíópíska rétttrúnaðarkirkjan (amharíska: የኢትዮጵያ ኦርቶዶክስ ተዋሕዶ ቤተ ክርስቲያን?, Yäityop'ya ortodoks täwahedo bétäkrestyan) er kristin austræn rétttrúnaðarkirkja. Samkvæmt arfsögn kirkjunnar var hún stofnuð af Filippusi guðspjallamanni á 1. öld. Hún varð ríkiskirkja í Axúm á 4. öld eftir trúboð sýrlenska Grikkjans heilags Frúmentíosar sem varð skipreika á strönd Erítreu. Kirkjan heyrði formlega undir koptísku kirkjuna og Alexandríupáfa til 1959 þegar Kýrilos 6. skipaði henni eigin patríarka. Eþíópíska kirkjan tilheyrir þeirri grein kristni sem hafnaði niðurstöðum kirkjuþingsins í Kalkedón 451 og er því ótengd eþíópísku kaþólsku kirkjunni.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/03/Display_of_Procesional_Crosses%2C_Church_of_Bet_Maryam%2C_Lalibela%2C_Ethiopia_%283230772118%29.jpg/640px-Display_of_Procesional_Crosses%2C_Church_of_Bet_Maryam%2C_Lalibela%2C_Ethiopia_%283230772118%29.jpg)
Milli 40 og 45 milljónir manna tilheyra eþíópísku kirkjunni, langflestir í Eþíópíu. Um helmingur íbúa landsins er í kirkjunni, en um 60% íbúa Eþíópíu eru kristnir.