![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8a/Dmitry_Medvedev_govru_official_photo_1.jpg/640px-Dmitry_Medvedev_govru_official_photo_1.jpg&w=640&q=50)
Dmítríj Medvedev
Fyrrum forseti og forsætisráðherra Rússlands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Dmítríj Anatoljevítsj Medvedev (á rússnesku: Дмитрий Анатольевич Медведев), fæddur 14. september 1965) er rússneskur stjórnmálamaður og fyrrum forseti Rússneska sambandsríkisins. Hann er jafnframt fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands. Hann fæddist í Sankti Pétursborg, þá nefnd Leningrad í fyrrum Sovétríkjunum.
Dmítríj Medvedev Дмитрий Медведев | |
---|---|
![]() | |
Forseti Rússlands | |
Í embætti 7. maí 2008 – 7. maí 2012 | |
Forsætisráðherra | Vladímír Pútín |
Forveri | Vladímír Pútín |
Eftirmaður | Vladímír Pútín |
Forsætisráðherra Rússlands | |
Í embætti 8. maí 2012 – 16. janúar 2020 | |
Forseti | Vladímír Pútín |
Forveri | Vladímír Pútín |
Eftirmaður | Míkhaíl Míshústín |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 14. september 1965 (1965-09-14) (58 ára) Leníngrad, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Sameinað Rússland |
Maki | Svetlana Linnik (g. 1993) |
Börn | 1 |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift | ![]() |
Medvedev var sem óháður frambjóðandi (en þó studdur af Sameinuðu Rússlandi, stærsta stjórnmálaflokki landsins), kjörinn þriðji forseti Rússlands þann 2. mars 2008 með 71,25% atkvæða í almennum kosningum, og tók embætti þann 7. maí 2008. Þar áður hafði hann gengt stöðu fyrsta aðstoðarforsætisráðherra rússnesku ríkisstjórnarinnar frá 14. nóvember 2005. Áður var hann starfsmannastjóri Vladímírs Pútín forseta. Frá árinu 2000 gengdi hann einnig stjórnarformennsku í olíufyrirtækinu Gazprom. Framboð Medvedev var stutt af Pútín þáverandi forseta.
Hann gerði efnahagslega nútímavæðingu Rússlands sem sitt meginviðfangsefni sem forseti. Á forsetatíð hans háði Rússland einnig stutt stríð gegn Georgíu árið 2008. Medvedev gaf ekki kost á sér til endurkjörs að loknu kjörtímabili hans árið 2012 og studdi þess í stað endurkomu Pútíns á forsetastól. Eftir að Pútín varð forseti á gerðist Medvedev forsætisráðherra landsins. Medvedev sagði af sér sem forsætisráðherra ásamt ríkisstjórn sinni í janúar 2020 eftir að Pútín tilkynnti fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskrá landsins til að færa völd frá forsetaembættinu til þingsins og ríkisráðs landsins.