David Seaman
enskur knattspyrnumaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
David Andrew Seaman, stundum nefndur „Safe Hands“, (fæddur 19. september 1963 í Rotherham, South Yorkshire) er enskur fyrrverandi knattspyrnumarkvörður sem spilaði fyrir nokkur lið, ekki síst Arsenal og síðast með Manchester City. Hann lagði hanskana á hilluna 13. janúar 2004 eftir farsælan feril. Hann var þekktur fyrir sítt tagl og afar þykkt yfirvaraskegg sem hann var með hluta ferilsins.