From Wikipedia, the free encyclopedia
Colorado-fljót (enska: The Colorado River, spænska: Río Colorado) er eitt helsta fljót í suðvestur-Bandaríkjunum og í norður-Mexíkó. Lengd þess er 2330 km og vatnasvið þess spannar sjö fylki Bandaríkjanna og tvö ríki Mexíkó.
Uppruna fljótsins má finna í mið-Klettafjöllum og leið þess heldur suðvestur um Colorado-sléttuna, um Miklagljúfur, í Mead-vatn við mörk Arizona og Nevada og suður til Mexíkó þar sem óshólmar þess eru milli Kaliforníu-flóa og Baja-Kaliforníuskaga.
Í umhverfi árinnar eru hrikaleg gljúfur og í vatnasviðinu eru ellefu þjóðgarðar Bandaríkjanna. Stíflur í fljótinu veita vatni um þurrt landslag suðvesturhluta BNA og framleiða rafmagn. Flestar stíflur voru byggðar milli 1910 og 1970, ein sú mikilvægasta er Hoover-stíflan en þar er vatnið/uppistöðulónið Mead-vatn. Af 25 stærri þverám er Græná (Green River) sú stærsta.
Fyrirmynd greinarinnar var „Colorado River“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 17. feb. 2017.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.