Calígúla
Rómverskur keisari frá 37 til 41 e.Kr / From Wikipedia, the free encyclopedia
Gaius Iulius Caesar Augustus Germanicus, betur þekktur sem Calígúla (á latínu: Caligula, stundum skrifað Kalígúla á íslensku) (31. ágúst 12 – 24. janúar 41) var þriðji keisari Rómaveldis 37 – 41. Hann tók við af Tíberíusi.
Staðreyndir strax Valdatími, Fæddur: ...
Calígúla | |
Rómverskur keisari | |
Valdatími | 37 – 41 |
---|---|
Fæddur: |
31. ágúst 12 |
Fæðingarstaður | Antium |
Dáinn: |
24. janúar 41 |
Dánarstaður | Róm |
Forveri | Tíberíus |
Eftirmaður | Claudíus |
Maki/makar | Junia Claudia, Livia Orestilla, Lollia Paulina, Milonia Caesonia |
Börn | Julia Drusilla |
Faðir | Germanicus |
Móðir | Agrippina eldri |
Fæðingarnafn | Gaius Julius Caesar Germanicus |
Keisaranafn | Gaius Caesar Augustus Germanicus |
Ætt | Julíska-claudíska ættin |
Loka
Calígúla var sonur Germanicusar og Agrippinu eldri. Hann var eyðsluseggur og grimmur og óútreiknanlegur harðstjóri og talinn geðbilaður. Hann ætlaði til dæmis að gera hest sinn Incitatus að ræðismanni. Calígúla var myrtur af liðsforingja í lífvarðasveit sinni, auk annarra.