Bylgja
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bylgja er órói sem berst um rúmið og flytur í mörgum tilfellum orku. Sumar bylgjur, svo sem hljóðbylgjur og sjávaröldur, verða til vegna þess að efni er aflagað og kraftar valda því að efnið leitar aftur í upprunalega stöðu. Aðrar bylgjur, svo sem rafsegulbylgjur geta ferðast í gegnum lofttæmi og byggja ekki á því að þær hafi áhrif á efnið í kringum sig.
- Þessi pistill fjallar um bylgjur og bylgjuhreyfingar í víðum skilningi. Einnig er til mannsnafnið Bylgja.
Þótt bylgjur í efni, og orkan sem þær bera, geti ferðast hratt og langt, flyst efnið í flestum tilfellum lítið úr stað, heldur sveiflast um upphafsstöðu sína. Hæsti punktur bylgju heitir öldutoppur og lægsti punktur öldudalur.