From Wikipedia, the free encyclopedia
Broddflétta (fræðiheiti: Actinidia arguta) er fjölær klifurrunni ættaður frá Japan, Kóreu, Norður-Kína, og austast í Rússlandi.[1][2]
Broddflétta | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Actinidia arguta (Siebold & Zucc.) Planch. ex Miq. | ||||||||||||||
Berin líkjast kívíávöxtum og eru svipuð á bragðið, en eru græn, brún, eða purpuralit með sléttri húð, stundum með roðabletti. Oft sætari en kíví, og er hægt að borða í heilu lagi og án þes að flysja.
Actinidia arguta var fyrst lýst af Philipp Franz von Siebold og Joseph Gerhard Zuccarini 1843 sem Trochostigma argutum.[3] Hún var svo flutt í ættkvíslina Actinidia 1867 af Friedrich Anton Wilhelm Miquel.[4]
Tegundin samanstendur af þremur afbrigðum:[4]
Actinidia arguta var. giraldii var upphaflega lýst af Ludwig Diels 1905 sem sjálfstæðri tegund (Actinidia giraldii),[5] en lýst sem afbrigði (A. arguta) 1972 af Vladimir Nikolaevich Voroschilov.[6] A. arguta var. hypoleuca var upphaflega lýst sem tegund (Actinidia hypoleuca) af Takenoshin Nakai 1904,[7] en lýst sem afbrigði (A. arguta) 1980 af Siro Kitamura.[8]
Meðal algengustu yrkja eru 'Ananasnaya', 'Geneva', 'MSU', 'Weiki', 'Jumbo Verde', og 'Rogow'. Japanska yrkið 'Issai' er sjálffrjóvgandi blendingur (A. arguta × A. rufa).
Þessi hraðvaxandi tegund er mjög frostþolin, og þolir (með hægri breytingu) niður að -34 °C, en ungir sprotar geta verið viðkvæmir fyrir vorfrostum.[9] Hún þarf 150 daga frostlaust vaxtartímabil, en verður ekki fyrir skemmdum af haustfrostum ef kælingin er smám saman.[2] Renglurnar geta vaxið 6m á ári við bestu skilyrði.[10] Blómgun er yfirleitt síðla vors og byrjar á þriðja ári.[11] Tilraunir til að rækta hana í stórum stíl hafa ekki gengið vegna stuttrar endingar berjanna og ójafns þroska.[10]
Broddfléttuber, fersk, hrá Næringargildi í hverjum 100 g (3,5 únsur) | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Orka 80 kkal 320 kJ | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Percentages are relative to US recommendations for adults. Heimild : NZ KiwiBerry Growers Inc. Næringargildi |
Berin er hægt að borða hrá eða í sultu.
Í kóreskri matreiðslu er broddflétta þekkt sem darae (다래). Ung blöð, kölluð darae-sun, eru oft borðuð sem „namul“ grænmeti.[12]
Austast í Rússlandi er hún þekkt sem kishmish (orðið hefur aðra merkingu í öðrum hlutum Rússlands). Þetta er vinsæll ávöxtur á uppskerutíma, yfirleitt seldur á bændamörkuðum.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.