Húshumla (fræðiheiti: Bombus lucorum) er tegund af humlum, útbreidd og algeng um Evrópu. Fræðiheitið er víða notað yfir nauðalíkar og illaðgreinanlegar tegundir af humlum. Jafnvel svo að 1983, Scholl og Obrecht gerðu Bombus lucorum complex til að útskýra þrjár tegundir (B. lucorum, Bombus magnus, and Bombus cryptarum) sem eru illaðgreinanlegar í útliti.[1] Nýleg endurskoðun á öllum þessum tegundum hefur útskýrt hvernig útbreiðslan er í Evrópu og Norður Asíu, næstum yfir að Kyrrahafi.[2] B. lucorum nær að Barentshafi í norðri. Hinsvegar í suður Evrópu er hún hálendistegund með útbreiðslu sem nær aldrei alveg að Miðjarðarhafi.[3]

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun ...
Húshumla
Thumb
Thumb
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríkið (Animalia)
Fylking: Liðdýr (Arthropoda)
Flokkur: Skordýr (Insecta)
Ættbálkur: Hymenoptera
Undirættbálkur: Gaddvespur (Apocrita)
Yfirætt: Apoidea
Ætt: Býflugnaætt (Apidae)
Ættkvísl: Humlur (Bombus)
Undirættkvísl: Bombus
Tegund:
B. lucorum

Loka

Í samanburði við aðrar humlutegundir eru húshumlur með styttri tungu sem hentar á blóm með grunnan botn eins og fífla og baldursbrár. Þær nota hana einnig til að ræna blómasafa úr blómum með dýpri blómbotn. Vinnubýin nota harða hornhulsu um tunguna til að gera holu í blómið, svo þær ná safanum án þess komast í snertingu við frjóin. Þar af leiðandi frjóvgar hún ekki blómið.

Hún er nýlegur landnemi á Íslandi.[4]

Ætt

Bombus lucorum tilheyrir ættkvísl hunangsflugna (Bombus) og undirættinni Bombus sensu stricto, sem telur fimm tegundir í Evrópu: B. terrestris, B. sporadicus, B. lucorum, B. magnus og B. cryptarum.[1] B. lucorum er skyldust B. terrestris, B. cryptarum, og B. magnus, með örfáum illgreinanlegum einkennum til að skilja þær í sundur.[5]

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.