![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/ec/Blutkreislauf.png/640px-Blutkreislauf.png&w=640&q=50)
Blóðrásarkerfið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Blóðrásarkerfið eða hjarta og æðakerfið er kerfi þar sem blóðið ferðast um æðar líkamans í hringrás. Blóðrásarkerfið sér um það að flytja súrefni og næringarefni til frumnanna og taka úrgangsefni frá frumunum. Hjartað er miðstöð blóðrásarkerfisins og sér um það að dæla blóðinu út til líkamans með slagæðum, þær heita ósæð og lungnaslagæð. [1]Einnig eru kransæðar, stundum kallaðar hjartahimnuslagæðar sem er kvíslast út frá ósæðinni og nærir hjartavöðvafrumurnar af næringu og súrefni.[2] Þegar slagæðar greinast í smærri þynnri æðar því lengra sem þær fjarlægjast hjartað kallast þær ]]háræðar]].[1] Næringarefnin og súrefnið berst til frumnanna í gegnum örþunna veggi háræðanna og þar tekur blóðið einnig við úrgangsefnunum frá frumunum. Þegar blóðið er komið með úrgangsefnin fara æðarnar smám saman að stækka og Það eru tvær bláæðar, þær heita efri og neðri holæð sem flytur súrefnissnautt blóð aftur til hjartans.[3] Þetta ferli er kallað stóra hringrásin.[1] Hjartað sendir svo súrefnissnauða blóðið áfram til lungnanna með lungnaslagæðinni og þarna í lungunum utan um lungnablöðrunum eru fínar þunnar háræðar til að taka á móti súrefninu sem bindist rauða blóðkorninu. Þarna losar líka blóðið sig við koltvíoxíð sem andað er frá í útöndun. Þessar háræðar í lungunum stækka á leið sinni til hjartans og sú æð kallast lungnabláæð. Þar er súrefnisríkt blóð á leiðinni í vinstri helming hjartans til að vera dælt aftur til líkamans. Þetta ferli er kallað litla hringrásin þegar blóðið er á leið sinni til lungnanna.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/ec/Blutkreislauf.png/640px-Blutkreislauf.png)
Í stóru hringrásinni þá berst blóðið til allra líffæra.[1] Til dæmis í smáþörmunum þar á sér stað næringarefna upptök í þarmatotunum sem fara svo til frumnanna, Í lifrinni eru sum næringarefnin tekin upp og geymd einnig eru skaðleg efni gerð skaðlaus. Nýrun er hreinsistöð blóðrásarkerfisins taka úrgangsefnin sem frumurnar skiluðu frá sér, það er losað við þessi úrgangsefni út úr líkamanum með þvagi. Líkaminn stýrir blóðstreyminu eftir þörfum það er að segja eins og þegar borða' er þá fer meira blóð til smáþarmana til að sækja næringarefni.