![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/db/Black_Mirror_logo.svg/langis-640px-Black_Mirror_logo.svg.png&w=640&q=50)
Black Mirror
From Wikipedia, the free encyclopedia
Black Mirror er breskur vísindaskáldskapssjónvarpsþáttaröð búin til af Charlie Brooker, undir yfirumsjón Charlie Brooker og Annabel Jones. Þeir fjalla um nútíma samfélag, sérstaklega með tilliti til ófyrirsjáanlegt afleiðingar nýrri tækni. Hver þáttur er sjálfstæður og á sér stað í hliðstæðri nútíð eða náinni framtíð, oft með dökkum og kaldhæðnum tón, þó sumir eru meira tilraunakenndri og léttari.
Black Mirror | |
---|---|
![]() | |
Tegund |
|
Búið til af | Charlie Brooker |
Upprunaland | Bretland |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 4 |
Fjöldi þátta | 19 (þáttalisti) |
Framleiðsla | |
Aðalframleiðandi |
|
Framleiðandi | Barney Reisz |
Lengd þáttar | 41–89 mínútur |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | |
Myndframsetning |
|
Hljóðsetning | Dolby Digital 2.0 |
Sýnt | 2011-12-04 – núna |
Tenglar | |
Vefsíða |
Fyrstu tvær seríunar voru frumsýndar á bresku sjónvarpsstöðinni Channel 4 í desember 2011 og febrúar 2013. Í framhaldi af því voru þættirnir keyptir af Netflix í september 2015. Samið var um 12 þætti, sem var svo skipt niður í þriðju og fjórðu seríu, hver sería voru 6 þættir. Fyrri serían var sett í loftið 21. október 2016 og seinni serían 29. desember 2017. Tilkynnt var um fimmtu seríu þann 5. mars 2018.
Black Mirror fengu innblástur af sambærilegum þáttum sem hétu The Twilight Zone, sem tókust á við umdeild samtíma mál, án þess að óttast ritskoðun. Brooker þróaði Black Mirror til að varpa ljósi á efni sem tengdist áræðni mannskynsins á tækni, með því að skapa sögur sem snérust um "hvernig við lifum nú - og hvernig við gætum lifað eftir 10 mínútur, ef við erum klaufar".
Þáttaröðin hefur fengið jákvæða dóma og hafa aukið áhuga á alþjóðavettvangi, sérstaklega í Bandaríkjunum eftir að þeir bættust við Netflix. Árið 2017, fékk þátturinn "San Junipero", úr seríu þrjú, sem var almennt vel tekið, fyrstu Primetime Emmy verðlaun, fyrir framúrskarandi sjónvarpsmynd og framúrskarandi handrit fyrir þætti, kvikmyndir eða drama fyrir Brooker.