Bláháfur
Hákarlategund / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bláháfur (fræðiheiti: Prionace glauca) er stór uppsjávarfiskur af ætt mannætuháfa. Hann getur þó leitað niður á allt að 350 metra dýpi til dæmis í fæðuleit.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: laga málfar og heimildir |
Bláháfur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Prionace glauca | ||||||||||||||
Útbreiðslusvæði bláháfs. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Vaxtarlag hans er vel aðlagað að ránlífi í uppsjónum, hann er grannvaxinn með langa og oddmjóa eyrugga, stóreygður og trýnið oddmjótt. Hann syndir yfirleitt hægt og rólega en eykur hraða sinn hratt þegar hann skynjar hugsanlega fæðu. Ef það gerist verður hann einn af hraðskreiðustu fiskum heims og hafa vísindamenn metið sundhraða hans á stuttum sprettum allt að 35 km á klukkustund. Sumir halda því reyndar fram að bláháfurinn geti náð mun meiri hraða eða rúmlega 90 km/klst. á mjög stuttum kafla. Slíkt hefur ekki verið sannað og er það dregið mjög í efa þar sem mótstaða vatnsins er það mikil að til að ná þessum hraða þyrfti óhemju mikla orku.