Björn Halldórsson
Íslenskur prestur og frumkvöðull (1724-1794) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Björn Halldórsson (5. desember 1724 – 24. ágúst 1794) var prestur í Sauðlauksdal. Hann var frumkvöðull í garðrækt og jarðyrkju á Íslandi. Enn í dag sést móta fyrir Akurgerði, gróðurreit þar sem Björn ræktaði kartöflur frá 1760. Minnismerki um sr. Björn er í Sauðlauksdal. Hann var mágur Eggerts Ólafssonar skálds. Björn var einn helsti boðberi upplýsingarinnar á Íslandi. Hann setti einnig fram byltingakenndar hugmyndir um gagnsemi brjóstamjólkur.