Bernhard von Bülow
Prússneskur stjórnmálamaður (1849-1929) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bernhard Heinrich Martin Karl von Bülow (3. maí 1849 – 28. október 1929) var þýskur stjórnmálamaður sem gegndi ýmsum mikilvægum ríkisstjórnarembættum á ferli sínum. Hann var utanríkisráðherra frá 1897 til 1900 og kanslari Þýskalands frá 1900 til 1909.
Staðreyndir strax Kanslari Þýskalands, Þjóðhöfðingi ...
Bernhard von Bülow | |
---|---|
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 17. október 1900 – 14. júlí 1909 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur 2. |
Forveri | Chlodwig zu Hohenlohe-Schillingsfürst |
Eftirmaður | Theobald von Bethmann-Hollweg |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. maí 1849 Klein Flottbek, Holtsetalandi, þýska ríkjasambandinu |
Látinn | 28. október 1929 (80 ára) Róm, Ítalíu |
Þjóðerni | Þýskur |
Maki | Maria Beccadelli di Bologna |
Undirskrift |
Loka
Bülow kom úr fjölskyldu sem átti sér langa sögu af ríkisþjónustu. Faðir hans var ríkiserindreki og móðir hans var dóttir samningamanns. Bernhard von Bülow óx úr grasi í miðju ýmissa helstu stjórnmálaviðburða síns tíma. Faðir hans var í þjónustu Danmerkur og varð því vitni að rígnum milli danskra og þýskra þjóðernissinna í Holtsetalandi sem leiddi til síðara Slésvíkurstríðsins árið 1864.