From Wikipedia, the free encyclopedia
Bergflétta (einnig kölluð viðvindill eða vafningsviður) (fræðiheiti: Hedera helix) er sígræn klifurjurt af bergfléttuætt og getur vaxið allt upp í 20 til 30 metra upp tré, kletta eða húsveggi.
Bergfétta | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Hedera helix L. | ||||||||||||||
Bergflétta og beykitré hafa þróast saman. Í beykiskógum vefur bergfléttan sig upp eftir stofni beykitrjáa og blómgast ekki fyrr en hún nær um 2. metra hæð. Bæði bergflétta og beykitré hafa hag af þessu samlífi. Bergfléttan myndar nærskjól sem ver stofn og lauf beykitrjáa. Auðvelt er að fjölga bergfléttu með græðlingum.
Bergflétta hefur þrifist á Íslandi síðan hún var gróðursett í garð við Hringbraut 10 um 1950. Sá klónn er kallaður sóleyjargötubergfléttan og er talinn hafa borist frá Edinborg í Skotlandi. Um 1970 var fluttur inn klónn sem kallast baltica en hann er ættaður frá Eystrasaltslöndum og er fíngerðari og þéttvaxnari en sóleyjargötubergfléttan.[1]
Matthías Johannessen skrifaði grein í Morgunblaðið árið 1965 sem nefndist Hversdagsganga um borgina. Greinin fjallar um gömul hús í Reykjavík, en einnig tré í görðum Reykvíkinga og út frá því nefnir hann bergfléttuna á húsi Björns Ólafssonar við Hringbrautina. Hann gengur síðan þangað með Hákoni Bjarnasyni. Þar hitta þeir konu Björns og segir svo:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.