Belís
From Wikipedia, the free encyclopedia
Belís er land á austurströnd Mið-Ameríku við Karíbahaf, með landamæri að Mexíkó í norðvestri og Gvatemala í vestri og suðri. Það nær yfir 22.970 ferkílómetra og íbúar eru rúmlega 400.000. Meginlandshluti landsins er um 290 km langur og 110 km breiður. Belís er fámennasta og dreifbýlasta land Mið-Ameríku, en fólksfjölgun (áætluð 1,87% á ári 2018) er þar önnur mest í heimshlutanum og með því mesta á Vesturlöndum.
Belize | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Sub Umbra Floreo (latína: Ég blómstra í skugganum) | |
Þjóðsöngur: Land of the Free | |
Höfuðborg | Belmópan |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | Froyla Tzalam |
Forsætisráðherra | Johnny Briceño |
Sjálfstæði | frá Bretlandi |
• Heimastjórn | 1964 |
• Sjálfstæði | 21. desember 1981 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
147. sæti 22.966 km² 0,8 |
Mannfjöldi • Samtals (2019) • Þéttleiki byggðar |
169. sæti 408.487 17,2/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 3,484 millj. dala (166. sæti) |
• Á mann | 8.576 dalir (118. sæti) |
VÞL (2018) | 0.720 (103. sæti) |
Gjaldmiðill | belísdalur (BZD) |
Tímabelti | UTC-6 |
Þjóðarlén | .bz |
Landsnúmer | +501 |
Menning Maja náði til Belís milli 1500 f.Kr. og 300 e.Kr. og blómstraði til um 1200. Fyrstu Evrópumennirnir komu árið 1502 þegar Kristófer Kólumbus sigldi inn í Hondúrasflóa. Landkönnun og landnám Evrópumanna hófust árið 1638. Á þeim tíma gerðu bæði Spánn og Bretland tilkall til landsins þar til Bretar sigruðu Spánverja í orrustunni um St. George's Caye undan ströndum landsins 1798. Nýlendan Breska Hondúras var stofnuð 1840 og varð krúnunýlenda árið 1862. Landið fékk sjálfstæði 1981.
Nafn landsins, og fyrri höfuðborgarinnar Belísborgar, er dregið af Belísá. Í Belís þrífst fjölbreytt menning og mörg tungumál. Enska er opinbert tungumál landsins en belískreólska er þjóðtunga þriðjungs íbúa. Spænska er annað mest talaða mál landsins. Innan Mið-Ameríku hefur Belís mikla sérstöðu og er skyldara ríkjum Karíbahafsins sem einnig eru fyrrum nýlendur Breta. Höfuðborg Belís er Belmópan en Belís er þéttbýlasta borgin og helsta hafnarborg landsins.
Vegna mikils tegundafjölda á landi og í sjó og fjölbreyttra vistkerfa leikur Belís lykilhlutverk í Mið-Ameríkurflökkureininni. Landið telst bæði til Mið-Ameríku og Karíbahafsins með sterk tengsl við bæði menningarsvæðin. Það er eina landið sem á fulla aðild að CARICOM, Samtökum ríkja í Rómönsku Ameríku og Karíbahafi og Samstarfskerfi Mið-Ameríku. Belís er samveldisland og Karl 3. er konungur og þjóðhöfðingi landsins.