![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/Bangsund1.jpg/640px-Bangsund1.jpg&w=640&q=50)
Bangsund
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bangsund er þéttbýli i Namsos sveitarfélaginu í Þrændalögum í Noregi. Í byggð eru 877 íbúar (2022). Byggðin er staðsett meðfram Fv17, 12 km suður af Namsos miðbæ. Bongna áin rennur til sjávar við Bangsund.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/Bangsund1.jpg/640px-Bangsund1.jpg)
Bangsund var stjórnsýslumiðstöð Klinga sveitarfélags, sem var sameinað sveitarfélaginu Namsos frá 1. janúar 1964.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/ad/Klinga_Kirche.jpg/640px-Klinga_Kirche.jpg)
Bangsundsskóli er sameinaður grunn- og framhaldsskóli með vel yfir 200 nemendur. Í Bangsund er einnig einkarekinn útileikskóli á Flök, opinber leikskóli, húsnæðis- og þjónustumiðstöð, verslunarmiðstöð, bílaverkstæði/bensínstöð, smábátahöfn, knattspyrnuvöllur og ungmennafélag.
Klingakirkja er langkirkja frá 1866. Byggingin er úr timbri og rúmar 270 sæti.