Bảo Đại
Síðasti keisari Víetnams / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bảo Đại (chữ Hán: 保大, bókst. „verndari göfuglyndisins“; 22. október 1913 – 31. júlí 1997) var þrettándi og síðasti keisari Nguyễn-ættarinnar, síðustu valdaættarinnar í Víetnam. Frá 1926 til 1945 var hann keisari Annam og að nafninu til þjóðhöfðingi Tonkin, sem voru þá verndarsvæði innan franska Indókína sem náðu yfir mið- og norðurhluta Víetnams. Bảo Đại tók við krúnunni árið 1932.
| ||||
Bảo Đại 保大帝 | ||||
Ríkisár | 8. janúar 1926 – 25. ágúst 1945 (sem keisari) 13. júní 1949 – 26. október 1955 (sem þjóðhöfðingi án titils) | |||
Skírnarnafn | Nguyễn Phúc Vĩnh Thụy | |||
Fæddur | 22. október 1913 | |||
Huế, franska Indókína | ||||
Dáinn | 31. júlí 1997 (83 ára) | |||
Val-de-Grâce, París, Frakklandi | ||||
Gröf | Passy-kirkjugarði | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Khải Định | |||
Móðir | Hoàng Thị Cúc | |||
Eiginkona | Nam Phương (g. 1934–1963) Bùi Mộng Điệp Lê Thị Phi Ánh Christiane Bloch-Carcenac Monique Baudot (g. 1972–1997) | |||
Börn | 5 (skilgetin), 7 (óskilgetin) |
Japanir steyptu frönsku nýlendustjórninni af stóli í mars árið 1945 og réðu í gegnum Bảo Đại, sem lýsti yfir stofnun víetnamsks keisaradæmis. Hann sagði af sér í ágúst 1945 þegar Japanir gáfust upp fyrir bandamönnum.
Frá 1949 til 1955 var Bảo Đại þjóðarleiðtogi hins andkommúníska „víetnamska ríkis“. Bảo Đại var almennt álitinn leppstjórnandi Frakka og var gagnrýndur fyrir að verja mestum tíma sínum utan Víetnams. Honum var að endingu steypt af stóli eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1955 af Ngô Đình Diệm forsætisráðherra, sem naut stuðnings Bandaríkjamanna.