![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Queen_Boudica_by_John_Opie.jpg/640px-Queen_Boudica_by_John_Opie.jpg&w=640&q=50)
Bódísea
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bódísea (einnig ritað sem Boudica, Boudicca eða Boadicea) var keltnesk drottning þjóðflokks Ísena sem bjuggu þar sem nú er Norfolk í Englandi. Hún leiddi uppreisn gegn hernámsliði Rómverja á Bretlandi árið 60 eða 61.
Staðreyndir strax Fædd, Dáin ...
Bódísea | |
---|---|
![]() Bódísea á málverki eftir John Opie. | |
Fædd | Í kringum árið 30 |
Dáin | Árið 60 eða 61 |
Þjóðerni | Íseni (keltnesk) |
Maki | Prasutagus |
Börn | 2 |
Loka
Ritað var um uppreisn Bódíseu í verkum sagnaritaranna Tacitusar[1] og Cassiusar Dio.[2] Þessi verk voru enduruppgötvuð á endurreisnartímanum en á Viktoríutímabilinu var í auknum mæli farið að bera Bódíseu saman við Viktoríu Bretadrottningu og henni lyft upp á stall sem bresku þjóðartákni og þjóðhetju.