Evrópuaskur
From Wikipedia, the free encyclopedia
„Askur“ vísar hingað. Fyrir aðra notkun á orðinu, sjá Askur (aðgreining).
Askur eða evrópuaskur (fræðiheiti Fraxinus excelsior) er tré af eskiættkvísl (Fraxinus).
Staðreyndir strax Askur, Vísindaleg flokkun ...
Askur | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Lauf og ófullþroska ávöxtur | ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Fraxinus excelsior L. | ||||||||||||||||||
Loka
Askurinn er einstofna tré með fremur mjóa krónu. Börkur er ljós og verða dökk brum mjög áberandi að vetri til. Blöðin eru stakfjöðruð og minna á blöð reyniviðar. Askur þarf rakan og frjósaman jarðveg, gott skjól og langt sumar.
Yfirleitt verður askurinn ekki eldri en 250 ára gamall, og er hann því fremur skammlíf tegund og getur sem margar slíkar náð miklum vexti á fyrstu árum sínum. Askurinn er í meðallagi stórvaxinn, allt að 46 m hár, en algengast að hann nái 20 til 35 metra hæð[1].
Vex hann í Evrópu frá Þrándheimsfirði í Noregi til suðurhluta Ítalíu.