Arkímedes
grískur stærðfræðingur og eðlisfræðingur (287 f.Kr.-212 f.Kr.) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Arkímedes frá Sýrakúsu (287 f.Kr. — 212 f.Kr.) var grískur stærðfræðingur, stjarnfræðingur, heimspekingur, eðlisfræðingur og vélfræðingur. Hann er oft talinn með mestu stærðfræðingum allra tíma. Hann er þekktastur fyrir framlög sín til rúmfræðinnar (geometríu). Hann fann meðal annars upp aðferðir til að reikna rúmmál og yfirborðsflatarmál kúlu og flatarmál fleygbogasneiðar. Hann skrifaði frægt verk um vökvaaflfræði og um jafnvægi. Rit sem hann skrifaði hét Aðferðin. Það glataðist en fannst aftur árið 1906.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/4/4d/Arkimedes-Konkani_vishwakosh.png)