From Wikipedia, the free encyclopedia
Antoni Tàpies i Puig (13. desember 1923 – 6. febrúar 2012) var myndlistarmaður, listfræðingur og myndhöggvari frá Katalóníu. Hann var einn frægasti listamaður Evrópu á sinni tíð. Yfirlitssýning á verkum Tàpies var opnuð á Kjarvalsstöðum 17. mars 2011.
Tàpies fékk hjartaáfall af völdum berkla aðeins 17 ára gamall og fór þá að nema myndlist. Hann skráði sig þó upphaflega til náms í lögfræði en tveimur árum seinna þá hóf hann myndlistarnám. Tàpies var í upphafi ferils síns undir áhrifum frá Miro og Klee en þróaði síðar sitt eigið myndmál með uppbyggðum myndfleti sem oft var ýfður upp með stöfum, tölum og táknum. Flest verka hans eru úr hversdagslegum hlutum eins og efni sem hann hefur fundið, mold sandi, jarðvegi, blóði eða steinryki.
Tàpies var mjög pólitískur og róttækur. Hann sagði árið 1990 „Þó að ég geti ekki breytt heiminum, þá vil ég að minnsta kosti breyta því hvaða augum fólk lítur hann.“
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.