Association Sportive de Monaco Football Club, oft kallað AS Monaco eða Monaco, er Knattspyrnufélag frá Mónakó sem keppir í Ligue 1 deildinni í Frakklandi. Félagið var stofnað árið 1924 og leikur heimaleiki sína í Stade Louis II í Fontvieille .
Þrátt fyrir að hafa aðsetur í Mónakó leikur félagið í frönsku deildinni. Mónakó er eitt sigursælasta félag franskrar knattspyrnu. Þeir hafa orðið deildarmeistarar átta sinnum og fimm sinnum bikarmeistarar. Þeir hafa komist í úrlslitaleik í UEFA bikarmeistarakeppninni 1992 og Meistaradeild Evrópu árið 2004 en töpuðu í bæði skiptin.
Hefðbundnir litir félagsins eru rauður og hvítur og klúbburinn er þekktur undir nafninu Les Rouges et Blancs ( þeir Rauðu og hvítu ). Í desember 2011 voru tveir þriðju hlutar klúbbsins seldir til fjárfestingarhóps undir forystu rússneska milljarðamæringsins Dmitry Rybolovlev. Með fjárhagslegum stuðningi Rybolovlev, tókst félaginu að komast aftur í Ligue 1 og vann deildina árið 2016, sem var þeirra fyrsti deildarmeistaratitill í 17 ár.
Staðreyndir strax Gælunafn/nöfn, Stytt nafn ...
|
Association Sportive de Monaco Football Club |
|
Fullt nafn | Association Sportive de Monaco Football Club |
Gælunafn/nöfn |
Les Monégasques (Mónakóbúarnir) Les Rouges et Blancs (Hinir Rauðu og Hvítu) |
Stytt nafn |
ASM |
Stofnað |
23. ágúst 1924 |
Leikvöllur |
Stade Louis II |
Stærð |
18,523 |
Stjórnarformaður |
Dmitry Rybolovlev |
Knattspyrnustjóri |
Robert Moreno |
Deild |
Ligue 1 |
2021-2022 |
3. sæti |
|
Loka