27. apríl er 117. dagur ársins (118. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 248 dagar eru eftir af árinu.

MarAprílMaí
SuÞrMiFiLa
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930
2024
Allir dagar

Atburðir

  • 1124 - Davíð 1. drap Alexander 1. og gerðist Skotakonungur.
  • 1241 - Mongólar sigruðu Bela 4. af Ungverjalandi í orrustunni við Sajo. Landið var lagt meira og minna í auðn.
  • 1296 - Orrustan við Dunbar: Játvarður 1. vann sigur á her Skota.
  • 1423 - Bæheimsku styrjaldirnar: Taborítar unnu úrslitasigur á útrakistum í orrustunni við Horic.
  • 1509 - Júlíus 2. páfi setti Feneyjar í bann þar sem Feneyingar höfðu hafnað því að láta hluta Romagna-héraðs í hendur páfastóls.
  • 1521 - Orrustan um Mactan: Ferdinand Magellan var drepinn í átökum við höfðingjann Lapu-Lapu á Filippseyjum.
  • 1646 - Enska borgarastyrjöldin: Karl 1. Englandskonungur flúði frá Oxford.
  • 1650 - Orrustan við Carbisdale: Her konungssinna gerði innrás í Skotland frá Orkneyjum en var sigraður af her Sáttmálamanna.
  • 1682 - Pétur mikli var krýndur Rússakeisari tíu ára gamall, ásamt hálfbróður sínum Ívan.
  • 1830 - Simón Bolívar sagði af sér sem forseti Bólivíu.
  • 1858 - Póstskipið Victor Emanuel, sem síðar var nefnt Arcturus, kom í fyrstu áætlunarferð sína frá Kaupmannahöfn. Meðal farþega var Konrad Maurer, þýskur prófessor, sem skrifaði bók um för sína.
  • 1908 - Sumarólympíuleikar voru settir í London.
  • 1915 - Gullfoss sigldi frá Reykjavík til New York og kom til baka mánuði síðar. Þetta var fyrsta ferð skips með íslenskri áhöfn á milli Íslands og Ameríku frá því á dögum Leifs heppna.
  • 1944 - Bestu hátíðarljóð fyrir lýðveldishátíðina þann 17. júní voru valin „Land míns föður“ eftir Jóhannes úr Kötlum og „Hver á sér fegra föðurland“ eftir Unni Benediktsdóttur Bjarklind sem kallaði sig Huldu.
  • 1960 - Tógó fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
  • 1961 - Síerra Leóne fékk sjálfstæði frá Bretum.
  • 1972 - Hútar í her Búrúndí hófu uppreisn. Stjórnin brást við með því að drepa tugi þúsunda Húta næstu daga.
  • 1977 - Önnur goshrina Kröfluelda hófst og stóð í þrjá daga.
  • 1978 - Daoud Khan, forseti Afganistan, var myrtur í valdaráni hersins. Afganska borgarastyrjöldin hófst í kjölfarið.
  • 1992 - Stuttmyndadagar í Reykjavík voru haldnir í fyrsta skipti á Hótel Borg.
  • 1993 - Allir liðsmenn karlalandsliðs Sambíu í knattspyrnu fórust þegar flugvél þeirra hrapaði við Libreville í Gabon á leið til Dakar.
  • 2001 - 17 létust þegar herlögregla skaut á mótmælendur í Kabylie í Alsír.
  • 2005 - Airbus A380, stærsta farþegaþota heims til þessa, fór í sitt fyrsta reynsluflug frá Toulouse í Frakklandi.
  • 2007 - Hópur vísindamanna í Genf undir stjórn Stéphane Udry uppgötvaði lífvænlegu plánetuna Gliese 581d.
  • 2010 - Standard & Poor's færði lánshæfismat Grikklands niður í ruslflokk 4 dögum eftir virkjun 45 milljarða evra björgunarpakka frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
  • 2011 - Landamæradeilur Taílands og Kambódíu: Til skotbardaga kom við kmerahofið Prasat Ta Muen Thom.
  • 2013 - Alþingiskosningar voru haldnar á Íslandi. Framsóknarflokkurinn vann stórsigur og bætti við sig 10 þingmönnum.
  • 2014 - Páfarnir Jóhannes 23. og Jóhannes Páll 2. voru teknir í dýrlinga tölu.
  • 2018 - Kim Jong-un fór yfir hlutlausa beltið og til Suður-Kóreu til fundar við Moon Jae-in. Þetta var í fyrsta sinn sem norðurkóreskur leiðtogi fór yfir beltið.
  • 2018 - Leikjakerfið Nintendo Labo var sett á markað.

Fædd

Dáin

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.