![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1b/Control_copyright_icon.svg/langis-640px-Control_copyright_icon.svg.png&w=640&q=50)
Þriggja þrepa prófið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þriggja þrepa prófið er heiti á takmörkunum á undanþágum frá einkarétti höfundar sem settar voru fyrst fram í Bernarsáttmálanum eftir endurskoðun hans í Stokkhólmi 1967. Slíkt þriggja þrepa skilyrði hefur síðan ratað inn í höfundalög ýmissa landa og er hluti af ýmsum alþjóðlegum samningum um hugverkarétt.
Samkvæmt þriggja þrepa prófinu verða undanþágur frá einkarétti höfundar að uppfylla þrjú skilyrði:
- þær skulu eiga við um sérstök afmörkuð tilfelli
- þær mega ekki brjóta í bága við eðlilega hagnýtingu verksins af hálfu höfundar
- þær mega ekki raska lögmætum hagsmunum höfundar