Útey
From Wikipedia, the free encyclopedia
Útey (norska: Utøya) er eyja í Tyrifjarðarvatni (Tyrifjorden) í suðurhluta Noregs, nánar tiltekið í Buskerudfylki (Biskupsruð). Útey er skógivaxin eyja, 10,6 hektarar að stærð og er í um 500 hundruð metra fjarlægð frá meginlandinu þar sem styðst er í land. Eyjan er í eigu Æskulýðsfélags Verkamannaflokksins í Noregi (Arbeidaranes Ungdomsfylking). Á eynni eru nokkur stór rjóður sem sum hafa verið notuð sem tjaldstæði gesta eða sem svæði til íþróttaiðkana.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d7/Tyrifjorden_map_Ut%C3%B8ya_highlight.png/220px-Tyrifjorden_map_Ut%C3%B8ya_highlight.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/62/Norvegio_Oslo1-Ut%C3%B8ya2-Buskerud_mapo.png/320px-Norvegio_Oslo1-Ut%C3%B8ya2-Buskerud_mapo.png)
Þann 22. júlí árið 2011 voru 69 manns, aðallega unglingar, skotnir til bana á eynni í hryðjuverkaárás hægriöfgamannsins Anders Behring Breivik, sem var dulbúinn sem lögreglumaður.