„Lúpína“ vísar hingað. Fyrir tegundina sem notuð er í landgræðslu á Íslandi, sjá
Alaskalúpína.
Úlfabaunir (líka kallað lúpína) er ættkvísl dulfrævinga í ættinni Fabaceae. Yfir 200 tegundir tilheyra ættkvíslinni, með meginútbreiðslu í Norður og Suður Ameríku.[1] Minni útbreiðslusvæði eru í Norður-Afríku og við miðjarðarhafið.[1][2] Fræ ýmissa tegunda úlfabauna hafa verið notuð sem fæða í yfir 3000 ár við miðjarðarhaf[3] og í allt að 6000 ár í Andesfjöllum (Uauy et al., 1995), en þau hafa aldrei fengið sömu viðurkenningu eins og sojabaunir eða baunir eða aðrar belgjurtir. Megin úlfabaun Andesfjalla Lupinus mutabilis var ræktuð í stórum stíl, en ekkert erfðaval annað en að velja stærri og vatnsmeiri fræ hafa verið gerð. Notendur lögðu fræið í bleyti til að fjarlægja megnið af beiskjuefnunum og elduðu þau til að gera þau æt,[4] eða létu þær sjóða og þurrkuðu þær til að búa til kirku.[5] Spænsk áhrif leiddu til breytinga á mataræði innfæddra og aðeins nýlega hefur áhugi á úlfabaunum vaknað á ný.[6][7]
Tegundirnar nýta sér samlífi við Bradyrhizobium gerla til að vinna nitur úr lofti.
Alaskalúpína hefur verið notuð í landgræðslu á Íslandi.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Einkennistegund ...
Loka