Ívan Mazepa
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ívan Stepanovytsj Mazepa (úkraínska: Іван Степанович Мазепа, pólska: Jan Mazepa Kołodyński; 30. mars 1639 – 2. október 1709) var rúþenskur hernaðar- og stjórnmálaleiðtogi sem réð yfir höfuðsmannsdæmi kósakka í Úkraínu innan rússneska keisaradæmisins frá 1687 til 1708.
| ||||
Ívan Mazepa Іван Мазепа | ||||
Ríkisár | 25. júlí 1687 – 11. nóvember 1708 | |||
Skírnarnafn | Ívan Stepanovytsj Mazepa | |||
Fæddur | 30. mars 1639 | |||
Bíla Tserkva, pólsk-litáíska samveldinu (nú Úkraínu) | ||||
Dáinn | 2. október 1709 (70 ára) | |||
Bender, Furstadæminu Moldóvu, Tyrkjaveldi | ||||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Stefan Adam Mazepa | |||
Móðir | Maryna Mokíjevska | |||
Eiginkona | Hanna Polovets (1642–1704) |
Á tíma Norðurlandaófriðarins mikla gerði Mazepa uppreisn gegn stjórn Péturs mikla Rússakeisara og gekk í lið með her Karls 12. Svíakonungs í von um að færa kósökkum í Úkraínu sjálfstæði. Mazepa og Karl töpuðu gegn Pétri í orrustunni við Poltava árið 1709 og Mazepa lést stuttu síðar.
Í rússneskri sagnahefð er Mazepa álitinn föðurlandssvikari gegn Rússlandi en í Úkraínu hefur í auknum mæli verið litið á hann sem þjóðhetju upp frá sjálfstæði landsins árið 1991. Saga Mazepa var fyrirmynd fjölda skáldverka og listaverka á rómantíska tímabilinu.