![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/10/Gaeltacht.svg/langis-640px-Gaeltacht.svg.png&w=640&q=50)
Írska
Opinbert tungumál Írlands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Írska (Gaeilge), einnig þekkt sem gelíska eða írsk gelíska, er keltneskt tungumál sem er talað á Írlandi, sérstaklega á svokölluðum Gaeltacht-svæðum, sem flest eru á vesturströnd Írlands, sérstaklega í nágrenni Galway. Margir Írar sem hafa áhuga á tungu sinni og menningu reyna að halda henni lifandi, en enn sem komið er hafa tilraunir þessar borið takmarkaðan árangur. Skilti á Írlandi eru bæði á ensku og á írsku. Írska er eitt af 23 opinberum tungumálum Evrópusambandsins.
Staðreyndir strax Írska Gaeilge, Opinber staða ...
Írska Gaeilge | ||
---|---|---|
Málsvæði | Írland | |
Heimshluti | Írland | |
Fjöldi málhafa | 280.000 sem móðurmál, 1 milljón sem annað mál í Írska lýðveldinu, 65.000 sem annað mál á Norður-Írlandi | |
Ætt | Indóevrópskt Keltneskt Eyjakeltneskt Gelískt Írska | |
Skrifletur | Latneskt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
![]() ![]() | |
Viðurkennt minnihlutamál | ![]() | |
Stýrt af | Foras na Gaeilge | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | ga | |
ISO 639-2 | ga | |
SIL | gle | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Loka
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/10/Gaeltacht.svg/640px-Gaeltacht.svg.png)
Elsta írskan notaði Ogham-skriftina frá 4. öld fram á 6. öld, en síðan var latneska stafrófið notað. Fornírska var töluð frá 6. öld fram á 10. öld, og miðírska frá 10. öld fram á 12. öld.