Franskur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Édouard Philippe (f. 28. nóvember 1970) er franskur stjórnmálamaður. Hann er fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, í embætti frá 15. maí 2017[1] til 3. júlí 2020.[2]
Édouard Philippe | |
---|---|
Forsætisráðherra Frakklands | |
Í embætti 15. maí 2017 – 3. júlí 2020 | |
Forseti | Emmanuel Macron |
Forveri | Bernard Cazeneuve |
Eftirmaður | Jean Castex |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 28. nóvember 1970 Rúðuborg, Frakklandi |
Þjóðerni | Franskur |
Stjórnmálaflokkur | Partie socialiste (á tíunda áratugnum); Union pour une mouvement populaire (2002–2015); Les républicains (2015–2018) |
Maki | Edith Chabre |
Börn | 3 |
Háskóli | Sciences Po |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Philippe er gamall nemandi úr Stjórnmálafræðiháskóla Parísar (Institut d'études politiques de Paris) og Þjóðlega stjórnarháskólanum (École nationale d'administration). Á tíunda áratugnum var hann meðlimur í franska Sósíalistaflokknum en hann sneri sér nokkuð til hægri á síðari árum.
Árið 2002 tók Philippe þátt í stofnun miðhægriflokksins Union pour un mouvement populaire (UMP) að áeggjan Alain Juppé fyrrverandi forsætisráðherra. Hann var starfaði í umhverfis- og orkumálaráðuneyti undir stjórn Juppé frá maí árið 2007 en hætti þegar Juppé tapaði endurkjöri í þingkosningum í júní sama ár.
Philippe sneri sér að héraðsstjórnmálum og var kjörinn borgarstjóri Le Havre árið 2010. Hann varð síðan þingfulltrúi borgarkjördæmisins árið 2012.[1]
Philippe studdi Alain Juppé í forkjöri hægriflokkanna fyrir frönsku forsetakosningarnar árið 2016. Eftir að Juppé beið ósigur fyrir François Fillon í forkosningunum studdi Philippe Fillon en dró stuðning sinn til baka eftir að Fillon var ásakaður um að hafa misnotað almannafé til að hygla eigin fjölskyldu. Eftir að Emmanuel Macron vann kosningarnar árið 2017 útnefndi hann Philippe forsætisráðherra sinn og bauð honum að mynda ríkisstjórn.
Philippe sagði af sér ásamt ríkisstjórn sinni þann 3. júlí árið 2020. Macron hafði þá tapað umtalsverðu fylgi í skoðanakönnunum og hafði því lýst yfir vilja til að breyta stefnu á síðustu tveimur árum kjörtímabils síns.[2] Jean Castex var skipaður nýr forsætisráðherra sama dag.[3]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.