Ævintýri Lísu í Undralandi
barnabók eftir Lewis Carroll frá árinu 1865 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ævintýri Lísu í Undralandi eða Lísa í Undralandi (e. Alice's Adventures in Wonderland) er skáldsaga eftir breska heimspekinginn Lewis Carroll. Á frummálinu var hún fyrst gefin út árið 1865.
Staðreyndir strax Höfundur, Upprunalegur titill ...
Höfundur | Lewis Carroll |
---|---|
Upprunalegur titill | Alice's Adventures in Wonderland |
Þýðandi | Þórarinn Eldjárn (1996) |
Land | Bretland |
Tungumál | Enska |
Útgáfudagur | Nóvember 1865 |
Framhald | Í gegnum spegilinn |
Loka
Bókin er sú fyrsta bókin í bókaröð sem segir frá uppátækjum ungrar stúlku að nafni Lísa, sem hefur ögn frjórra ímyndunarafl en flestir þora að viðurkenna. Sagan er uppfull af þrautum, rökvillum og mótsögnum og öðrum heimspekilegum vangaveltum höfundarins.
Sagt er að sagan um Lísu hafi verið sögð í fyrsta skiptið um borð í árabát, en þar kepptist Carroll við að halda litlum frænkum sínum uppteknum með því að spinna söguna. Þegar sagan var svo skrifuð tók hún á sig nýjar víddir.