Augnhvíta
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvíta (fræðiheiti: Sclera) myndar stærsta hluta af bandvef sem myndar ysta lag augans. Hlutverk hvítunar er að halda formi augans og sjá til þess að ekkert sleppi inn eða út úr þessum hluta augans. Einnig er hvítan festing fyrir vöðvana sem sjá um hreyfingu á augnknettinum. Sjóntaugin fer líka út í gegnum hvítuna og flestar þær æðar sem liggja inn í augað fara í gegnum hvítuna aftan á augnknettinum. Hvítan er þykkst ca. 1mm og þynnst um 0,3 mm.[1]