Vatíkanið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vatíkanið eða Páfagarður (latína: Status Civitatis Vaticanae, ítalska: Stato della Città del Vaticano), er landlukt land undir stjórn Hins helga stóls (latína: Sancta Sedes), æðsta yfirvalds kaþólsku kirkjunnar, sem er einráður yfir því. Landið er landlukt en eina ríkið sem það á landamæri að er Ítalía, enda er ríkið í raun inni í Rómarborg. Þar hefur páfinn aðsetur sitt og eru þar margar kirkjur og kapellur, þeirra á meðal hin fræga Sixtínska kapella.
Staðreyndir strax
Vatíkanið | |
Status Civitatis Vaticanae Stato della Città del Vaticano | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Inno e Marcia Pontificale | |
Höfuðborg | Vatíkanið |
Opinbert tungumál | ítalska |
Stjórnarfar | Einveldi |
Páfi | Frans |
Forsætisráðherra | Pietro Parolin |
Nefndarforseti | Giuseppe Bertello |
Sjálfstæði | |
• Lateransamningarnir | 11. febrúar 1929 |
Flatarmál • Samtals |
194. sæti 0,49 km² |
Mannfjöldi • Samtals (2019) • Þéttleiki byggðar |
240. sæti 453 924/km² |
Gjaldmiðill | Evra |
Tímabelti | UTC +1 (+2) |
Þjóðarlén | .va |
Landsnúmer | +379 |
Loka