Tvíþættir forystuháskólar
áætlun kínverskra stjórnvalda um framþróun lykilháskóla landsins fyrir árið 2050 / From Wikipedia, the free encyclopedia
„Háskólar í heimsgæðum“ og „fyrsta flokks akademísk uppbygging vísindagreina“ (kínverska: 世界一流大学和一流学科建设), saman þekkt sem „hin tvíþætt forysta“ (kínverska: 双一流; rómönskun: shuúāngy; enska: „Double First-Class Initiative“) er verkefni Alþýðulýðveldisins Kína sem sett var af stað árið 2015 til framþróunar fyrsta flokks háskóla í landinu fyrir árslok 2050.
Þróa skal og styrkja með fjárframlögum, einstakar deildir tiltekinna háskóla og setja kínversku háskóla- og vísindasamfélagi ný viðmið. Þeir háskólar sem eru í verkefninu eru kallaðir „tvíþættir forystuháskólar“.