Tianjin
borghérað í norðurhluta Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tianjin (T’ien-ching eða Tientsin í íslenskum heimildum) (kínverska: 天津; rómönskun: Tiānjīn), er borghérað á austurströnd Bóhaíhafs í norðurhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Borghéraðið er eitt þéttbýlasta svæði heims. Hún er þriðja stærsta sveitarfélag landsins, á eftir Beijing og Sjanghæ. Það er staðsett austur af Hebei héraði, við norðausturhluta Norður-Kína sléttunnar. Tianjin er mikilvæg framleiðsluborg í Kína og leiðandi höfn Norður-Kína.
Tianjin
天津 | |
---|---|
Hnit: 39°08′01″N 117°12′19″A | |
Land | Kína |
Stofnun | U. þ. b. 340 f.Kr. |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Chen Min'er |
• Borgarstjóri | Zhang Gong |
Flatarmál | |
• Sveitarfélag | 11.946 km2 |
• Þéttbýli | 5.609,9 km2 |
• Stórborgarsvæði | 11.609,91 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 5 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Sveitarfélag | 13.866.009 |
• Þéttleiki | 1.200/km2 |
Tímabelti | UTC+08:00 |
Póstnúmer | 300000 – 301900 |
Svæðisnúmer | 22 |
Vefsíða | www |
Tianjin (sem þýðir bókstaflega „hið himneska vað“) er um 56 kílómetra inn af landinu frá Bóhaíhafi, grunnum vog Gula hafsins. Hún hefur verið mikilvæg flutnings- og verslunarmiðstöð allt frá dögum mongólska Júanveldisins (1206–1368). Aðgangur að hafi og hlutverk sem verslunargátt til Beijing borgar stuðlaði að miklum vexti þjóðernislega fjölbreytni og nýsköpun í viðskiptum íbúa. Borgin er þekkt fyrir handofnar afurðir sínar, leirhermenn, handmálað viðarprent og sjávarréttamenningu. Á stórborgarsvæði Tianjin bjuggu árið 2020 um 13,9 milljónir manna.