Napa-sýsla (Kaliforníu)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Napa-sýsla er sýsla norður af San Francisco í Norður-Kaliforníu. Í sýslunni er Napa Valley. Árið 2000 bjuggu á svæðinu 124.249. Höfuðstaður sýslunnar nefnist Napa.
Napa County er þekkt fyrir vínframleiðslu sína, sem er í svipuðum gæðaflokki og frönsk og ítölsk vín. Sýslan er stutt frá San Francisco, Oakland og Sacramento og er mjög eftirsóttur staður til að búa á. Ekki er óalgengt að húsnæði í sýslunni seljist á allt að 10 milljónir dollara (u.þ.b. 650 milljónir íslenskra króna).
Napa er komið úr indjánamáli og getur þýtt hús, móðurland eða fiskur.
Notendur Windows stýrikerfisins kunna að kannast við landslag frá Napa County. Einn bakgrunnurinn, Bliss.jpeg, er frá Napa Valley, með grænum hlíðum og bláum himni.