Lyndon B. Johnson
36. forseti Bandaríkjanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lyndon Baines Johnson (27. ágúst 1908 – 22. janúar 1973) oft nefndur LBJ, var 36. forseti Bandaríkjanna frá 1963 til 1969. Hann varð 37. varaforseti Bandaríkjanna eftir að hafa lengi verið þingmaður og tók við sem forseti eftir að Kennedy forseti var myrtur í Dallas í Texas 22. nóvember 1963. Hann var leiðtogi demókrata og sem forseti beitti hann sér fyrir málum eins og mannréttindalöggjöf, heilsuvernd fyrir aldraða og fátæka, aðstoð til menntunar, og „stríði gegn fátækt“. Á sama tíma jók hann hernaðinn í Víetnam og fjölgaði bandarískum hermönnum þar úr 16 þúsund árið 1963 í 550 þúsund snemma árs 1968 en af þeim dóu um það bil eitt þúsund í hverjum mánuði.
Lyndon B. Johnson | |
---|---|
Forseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 22. nóvember 1963 – 20. janúar 1969 | |
Varaforseti | Enginn (1963–1965) Hubert Humphrey (1965–1969) |
Forveri | John F. Kennedy |
Eftirmaður | Richard Nixon |
Varaforseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 1961 – 22. nóvember 1963 | |
Forseti | John F. Kennedy |
Forveri | Richard Nixon |
Eftirmaður | Hubert Humphrey |
Öldungadeildarþingmaður fyrir Texas | |
Í embætti 3. janúar 1949 – 3. janúar 1961 | |
Forveri | W. Lee O'Daniel |
Eftirmaður | William A. Blakley |
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir 10. kjördæmi Texas | |
Í embætti 10. apríl 1937 – 3. janúar 1949 | |
Forveri | James P. Buchanan |
Eftirmaður | Homer Thornberry |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 27. ágúst 1908 Stonewall, Texas, Bandaríkjunum |
Látinn | 22. janúar 1973 (64 ára) Stonewall, Texas, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Lady Bird Taylor (g. 1934) |
Börn | 2 |
Háskóli | Ríkisháskólinn í Texas Georgetown-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Johnson var kjörinn með miklum meirihluta atkvæða kjörmanna árið 1964 og tók við sem kjörinn forseti í janúar 1965. Hann bauð sig fram til síðara kjörtímabils árið 1968, en hætti við framboð vegna óeiningar í eigin flokki og sneri sér að friðarumleitunum. Hans er minnst fyrir sterkan persónuleika og föst tök á valdamiklum stjórnmálamönnum. Erfitt er að meta langtímaáhrif hans þar sem Víetnamstríðið og óvinsældir þess vógu mjög upp á móti þeim árangri sem hann náði á sviði mannréttinda innanlands.