Jakobsvegurinn
pílagrímaleið að Santiago de Compostela á Spáni / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jakobsvegur eða Vegur heilags Jakobs er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu. Hann heitir á galisísku O camiño de Santiago, á spænsku El Camino de Santiago og frönsku Chemins de Saint-Jacques. Jakobsvegurinn endar í dómkirkjunni í Santiago de Compostela í héraðinu Galisíu á Spáni en hefst þar sem pílagrímurinn leggur af stað.
Snemma skapaðist helgisögn um tengsl Jakobs postula við norðvestur Spán og á 9. öld var álitið að líkamsleifar hans hefðu fundist þar sem nú er borgin Santiago de Compostela og er hún nefnd eftir Jakobi. Fljótlega fóru trúaðir víðsvegar að úr Evrópu að fara í bótgerðar og þakkargöngur til borgarinnar og varð hún þriðji mikilvægasti ákvörðunarstaður kristinna pílagríma á eftir Jerúsalem og Róm.