Flórens
borg í Toskanahéraði á Ítalíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Flórens (ítalska: Firenze; hefur verið nefnd „Fagurborg“[1] á íslensku) er höfuðstaður Toskanahéraðs á Ítalíu, auk þess að vera höfuðstaður samnefndrar sýslu. Íbúafjöldi borgarinnar var um 360 þúsund árið 2022.[2]
Á endurreisnartímanum var borgin borgríki og síðar höfuðborg stórhertogadæmisins Toskana. Hún er fræg sem heimaborg margra helstu frumkvöðla endurreisnarinnar á sviði vísinda, heimspeki og lista, eins og Leonardo da Vinci, Galileo Galilei, Michelangelo Buonarroti og Niccolò Machiavelli. Hún er því stundum kölluð „fæðingarstaður endurreisnarinnar“. Borgin reis til mikilla áhrifa á Ítalíuskaganum á þeim tíma og varð miðstöð fjármála og verslunar. Gjaldmiðill borgarinnar, flórínan, var lánagjaldmiðill um alla Evrópu.[3] Á þeim tíma komst Medici-ætt til valda í borginni, en byltingar og trúarlegt umrót settu svip á valdatíð þeirra.[4] Eftir sameiningu Ítalíu og stofnun konungsríkis 1865 var Flórens höfuðborg ríkisins um stutt skeið, þar til hersveitum þess tókst að leggja Róm undir sig árið 1871. Flórensmállýska varð undirstaða ítalsks ritmáls og staðlaðrar ítölsku um allt landið[5] vegna rithöfunda á borð við Dante Alighieri, Petrarca og Giovanni Boccaccio.
Borgin liggur á hásléttu rétt sunnan við Appennínafjöllin, við Arnófljót í frjósömum dal þar sem áður var mýri. og atvinnulíf byggir fyrst og fremst á viðskiptum, framleiðsluiðnaði og ferðaþjónustu. Fiorentina er helsta knattspyrnulið borgarinnar og heimavöllur þess er Campo di Marte. Í borginni er alþjóðaflugvöllur, Amerigo Vespucci-flugvöllur (IATA: FLR), almennt kallaður Peretola eftir hverfinu þar sem hann er staðsettur, en formlega kenndur við landkönnuðinn Amerigo Vespucci.
Verndardýrlingur borgarinnar er Jóhannes skírari og er skírnarkirkja honum helguð fyrir framan dómkirkjuna, Santa Maria del Fiore, sem almennt er kölluð Duomo. Hátíð borgarinnar er því Jónsmessan á miðju sumri og þá er efnt til veglegrar flugeldasýningar.