Dyflinn
höfuðborg Írlands / From Wikipedia, the free encyclopedia
„Dublin“ vísar hingað. Fyrir aðra notkun á orðinu, sjá Dublin (aðgreining).
Dyflinn (á íslensku einnig nefnd Dyflinni eða Dublin, frb. [ˈtœplɪn]; írska: Baile Átha Cliath, enska: Dublin) er höfuðborg og jafnframt stærsta borg Írska Lýðveldisins. Hún stendur við miðja austurstönd Írlands við árósa Liffey-ár, í Dyflinnarsýslu. Dyflinn hefur verið höfuðborg Írlands síðan á miðöldum.
Staðreyndir strax DublinBaile Átha Cliath (írska), Land ...
Dyflinn
Dublin Baile Átha Cliath (írska) | |
---|---|
Hnit: 53°21′00″N 06°15′37″V | |
Land | Írland |
Hérað | Leinster |
Flatarmál | |
• Borg | 117,8 km2 |
• Þéttbýli | 345 km2 |
Mannfjöldi (2022) | |
• Borg | 592.713 |
• Þéttleiki | 5.032/km2 |
• Þéttbýli | 1.263.219 |
• Þéttleiki þéttbýlis | 3.659/km2 |
Tímabelti | UTC+0 |
• Sumartími | UTC+1 |
Svæðisnúmer | 01 (+3531) |
ISO 3166 kóði | IE-D |
Vefsíða | www |
Loka
Stóra Dyflinnarsvæðið vísar til Dyflinnarsýslu, Dun Laoghaire-Rathdown, Fingal, Kildare, Meath, Suður-Dyflinnar og Wicklow, en fólk ferðast enn lengri leiðir til þess að komast til vinnu.
Íbúafjöldi Dyflinnar var 554.554 við manntal 2016, en Dyflinnarsvæðið hafði 1,347,539 íbúa og alls voru 1,904,872 íbúar á stórborgarsvæðinu.