Charles de Gaulle
18. forseti Frakklands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Charles André Joseph Marie de Gaulle (22. nóvember 1890 – 9. nóvember 1970), sem í heimalandi sínu, Frakklandi, var iðulega kallaður général de Gaulle, var hershöfðingi og stjórnmálamaður. Hann leiddi hið frjálsa Frakkland í seinni heimsstyrjöldinni og var í forystu frönsku ríkistjórnarinnar frá 1944 til 1946. Leitað var til hans um myndun ríkisstjórnar árið 1958. Hann vann að gerð nýrrar stjórnarskrár, stjórnarskrá fimmta lýðveldisins, og varð fyrsti forseti þess frá 1958 til 1969. Stjórnmálaleg hugmyndafræði hans er þekkt sem gaullismi og hefur verið áberandi í frönskum stjórnmálum.
Staðreyndir strax Forseti Frakklands, Forsætisráðherra ...
Charles de Gaulle | |
---|---|
Forseti Frakklands | |
Í embætti 8. janúar 1959 – 28. apríl 1969 | |
Forsætisráðherra | Michel Debré Georges Pompidou Maurice Couve de Murville |
Forveri | René Coty |
Eftirmaður | Georges Pompidou |
Forsætisráðherra Frakklands | |
Í embætti 1. júní 1958 – 8. janúar 1959 | |
Forseti | René Coty |
Forveri | Pierre Pflimlin |
Eftirmaður | Michel Debré |
Formaður bráðabirgðastjórnar Frakklands | |
Í embætti 20. ágúst 1944 – 3. júlí 1946 | |
Forveri | Philippe Pétain (sem þjóðhöfðingi) Pierre Laval (sem forsætisráðherra) |
Eftirmaður | Félix Gouin |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. nóvember 1890 Lille, Frakklandi |
Látinn | 9. nóvember 1970 (79 ára) Colombey-les-Deux-Églises, Frakklandi |
Stjórnmálaflokkur | Union des démocrates pour la République |
Maki | Yvonne Vendroux |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | Philippe de Gaulle, Élisabeth de Boissieu, Anne de Gaulle |
Háskóli | École spéciale militaire de Saint-Cyr |
Undirskrift |
Loka